Hallo Mexico

11 maí 2006

Er kominn Maí?

Ég held að það sé jafnvel kominn tími til að færa inn nýja færslu hérna. Enda held ég að það sé kominn einn og hálfur mánuður síðan ég skrifaði eitthvað síðast.

Ferðin sem við fórum í seinnipartinn í mars var bara ágæt. Við fórum á marga staði, t.d. Puebla, San Cristobal, Palenque, Cancún og Veracruz og skoðuðum mikið af rústum, m.a. Tenochtitlan, Palenque, Uxmal, Yaxchilan og Chichen Itza. Einnig var líka (auðvitað) þónokkuð um fyllerí í ferðinni.

Eftir að ég kom úr ferðinni hefur bara eiginlega ekkert verið að gerast. Virkir dagar fara í skólann, og um helgarnar er svona reynt að gera eitthvað, fara í bíó eða koma saman með kunningjum. Ég fór t.d. núna um dagana í bíó með Luis Mario og Jan, að sjá Mission Impossible III. Ég var nú bara nokkuð sáttur við hana. Ekki kannski að segja að þetta sé einhver stórmynd, en mjög góð skemmtun.

Annars held ég að það sé ekki mikið meira sem ég hef að segja í bili.

Kveðja,
Ágúst

15 mars 2006

Muninn

Haldið ekki bara að þegar ég kom heim úr skólanum í dag beið Muninn eftir mér á borðinu. Ég byrjaði náttúrulega að lesa strax, yfir matnum. Mjög skemmtileg lesning.

Meira verður þetta nú ekki núna, vildi bara aðeins minnast á þetta.

Kveðja,
Ágúst

14 mars 2006

Einn póstur áður en ég legg í hann

Jæja, nú fer bara að koma að því. Tveggja vikna ferðalag um suður-Mexíkó, sem hefst á föstudagskvöld. (Þ.e.a.s. við leggjum af stað frá Durango til Mexíkóborgar þá.)

Annars er bara allt gott að frétta. Voða lítið annað merkilegt að gerast um þessar mundir, skólinn og allt annað bara eins og venjulega. Ég ætla að reyna að setja inn hérna einhverjar myndir frá ferðinni til Morelia, en ég veit ekkert hvort þetta á eftir að ganga upp... við sjáum til.



Þetta er dómkirkjan í Morelia, laugardagskvöldið. Á laugardagskvöldum er kveikt á þessum ljósum smám saman, spiluð tónlist og skotið upp flugeldum, til að draga fólk í miðbæinn og athygli að dómkirkjunni. Mjög stór og tilkomumikil bygging.

Hérna er mynd af mótinu, margt fólk að tefla.

Hérna er mynd af einni af mínum skákum (ég var hvítur).

Fleira fólk að tefla.

Mynd frá Linares-Morelia mótinu. Topalov vinstra meginn. Sé ekki hver hinn er.

Vassily Ivanchuk

Og hér er svo veggmynd úr byggingunni þar sem mótið var haldið.

Jæja, þá verður þetta nú ekki meira í bili, kærar kveðjur heim,
Ágúst.

24 febrúar 2006

Kominn aftur

Heyriði já, það er alveg rétt, ég ætlaði að blogga í gærkvöldi. Ég bara einhvern veginn komst ekki alveg í „gírinn“ og bloggaði þess vegna ekki.

Í rauninni finnst mér hálf þreytandi að vera alltaf að gefa skýrslu um hvað ég hef verið að gera, en ég læt mig nú samt hafa það! Ja... svona einstöku sinnum...

Ferðin til Morelia var bara fín. Mér gekk nú ekkert svo vel í keppninni... endaði með einn og hálfan af sjö. En þó, eins og sagt er, það hefði getað verið verra. Morelia er mjög falleg borg, með mjög stóra og fallega dómkirkju. Ég fékk nú lánaða stafrænu myndavélina hans Luis, þannig að ef ég nenni einhvern tímann að koma þeim inn á tölvuna mættuði svo sem alveg búast við því að það birtist einhverjar hérna á blogginu (ekki það að ég sé að lofa neinu).

Svo var náttúrulega á sama tíma í gangi fyrri helmingur Linares mótsins (og þessi fyrri helmingur stendur reyndar enn yfir þarna í Morelia) og ég sá þessa 8, fékk meira að segja eiginhandaráritanir frá þeim öllum. Þessir 8 eru: Topalov (núverandi heimsmeistari), Sviedler, Leko, Vallejo, Aronian, Bacrot, Radjabov og Ivanchuk.

Ég og Jan vorum þarna með skákkennaranum okkar (Alejandra Guerrero), og hún þekkir Vassily Ivanchuk. Á þriðjudaginn fórum við með henni, Vassily og eiginkonu hans í dýragarðinn í Morelia, sem er heldur stór, gaman að koma þangað. Um kvöldið sátum við síðan uppi á hótelherbergi hjá þeim og drukkum rauðvín. Nú get ég sagt af reynslu, í fullustu alvöru, að Vassily og kona hans eru bæði hálfgeðveik.

Annars ar bara allt gott að frétta, kominn aftur í skólann og svona. Veðrið fínt (ef frekar heitt) og allt bara í góðu lagi.

Kveðja,
Ágúst

01 febrúar 2006

Loksins! Loksins!

Jæja, ætli maður verði ekki að reyna að blogga eitthvað aðeins. Það er nú liðinn smátími síðan síðast...

Það er nú annars allt gott að frétta. Prófin eru búin. Þau gengu nú flest vel, en ég féll í bókmenntum og þarf að taka upptökupróf þann fyrsta mars. Það ætti ekki að verða mikið mál, ef ég bara legg það á mig að læra.

Annars hef ég verið að leggja stund á þá göfugu íþrótt skák þónokkuð upp á síðkastið (Og áður en fólk fer að reyna að vera fyndið, skák ER íþrótt, ekki „hobbí fyrir nörda“).

Semsagt, allt gott að frétta. Í febrúar mun ég fara með Jan og einhverjum mexíkönum til Morelia, sem er mjög falleg "colonial" borg sunnarlega í Mexíkó. Það verður mikið að gerast þar, Opna mexíkanska skákmótið verður í gangi og fyrri helmingurinn af Linares skákmótinu er haldinn þar á sama tíma. Á Linares mótinu spila 8 af sterkustu skákmönnum heims, og Gary Kasparov (sem er hættur að spila) verður við setningarathöfnina.

Ég held að ég láti þetta duga núna, kær kveðja,
Ágúst

PS: Muninn er ekki enn kominn bíð enn í ofvæni.

PPS: Square-Enix er að gefa út Grandia III núna á næstunni... yay!

17 janúar 2006

Úff

Ahh

Ég ætlaði að skrifa afmælisblogg, en ég er bara alls ekki í skapi til þess. Kannski skrifa ég eitthvað á morgun...

Afsakið

05 janúar 2006

Nýtt ár... held ég

Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á að skrifa eitthvað aftur...

Jólin liðu vel, allt í þessu besta hérna. Ég fór meira að segja í messu á aðfangadagskvöld, en hún var nú heldur langdregnari og óþægilegri heldur en jólamessurnar á Miklabæ.

Ég gerði nú þónokkuð í fríinu. Við Jan tókum þátt í skákmóti fyrir jól, okkur gekk nú ekkert sérlega vel, en annars tókum við bara þátt til að hafa eitthvað að gera. Ég eyddi þónokkrum tíma með Jan í fríinu, við fórum niður í bæ nokkrum sinnum, tefldum, o.s.frv.

Fjölskyldan eyddi bæði aðfangadagskvöldi og nýári með ættingjum sem búa hérna, og á aðfangadag voru líka með okkur ættingjar sem búa í Mexíkóborg, sem voru hérna í Durango mikinn hluta af fríinu.

Skólinn byrjaði aftur 2. janúar, og svo fara prófin að byrja í næstu viku... við sjáum til hvernig það á allt saman eftir að ganga...

Kærar kveðjur,
Ágúst

PS: Takk fyrir að senda Muninn, Sindri. Ég hlakka til að sjá blaðið!